Nýja myndbandið með Gus Gus
12.9.2009 | 13:40
Nýja myndbandið með Gus Gus "Add this song".
Það er alveg magnað hvað þetta er flott lag og ekki það fyrsta sem er framúrskarandi úr smiðju Gus Gus. Önnur fantagóð eru til dæmis David, Moss, Believe, Need in me, Polyesterday, Ladyshave, Desire ofl.
|
GusGus heldur útitónleika við Laugaveg |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hannes með óborganlegt uppistand
3.9.2009 | 15:15
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýsköpun, stjórnlagaþing og persónukjör
29.8.2009 | 17:20
Nú er tími kominn að snúa sér að uppbyggilegum málum hér á skerinu.
Þorsteinn Pálsson skrifar pistil í Fréttablaðið í dag þar sem hann rifjar upp þörf mál sem beðið hafa eins og Stjórnlagaþing og Persónukjör.
Ekki síður vil ég minna á þörfina á því að halda áfram að ýta undir nýsköpun:
- Skattaafslátt fyrir þá sem fjárfesta í skilgreindum sprotafyrirtækjum.
- Efla styrkja- og fjárfestingaúrræði til sprotamála sem ríkið ræður yfir.
- Bætur á skattaumhverfi þess þegar sprotafyrirtæki ræður starfsfólk á lágum launum gegn því að það fái hlutdeild í félaginu í staðin. Í dag er það þannig að starfsmaðurinn þarf að greiða tekjuskatt af þeim mun sem er á því verði sem hann kaupir á (yfirleitt 1 ár eftir að samningur er gerður þetta kallast að "exercise the stock option") og því verði sem t.d. áhættufjárfestingasjóður keypti á síðast.
|
Semja verði aftur um Icesave |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Krípið bloggar (linkur)
29.8.2009 | 12:12
Barnaræninginn í Kaliforníu bloggar og vitnar í Guð.
Hann er viss um eigið sakleysi, þetta er bara umfram okkar skilning núna það sem hann er búinn að vera að gera.
http://voicesrevealed.blogspot.com/
|
Grunaður um fleiri afbrot |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
TellmeTwin í Huffington Post
24.4.2009 | 17:32
Vildi benda á þetta viðtal sem Íris Erlingsdóttir tók við mig fyrir Huffington Post um TellmeTwin, verðlaunin sem við unnum sem Red Herring European Top 100 Technology company og hvernig það er að reka sprotafyrirtæki á Íslandi í dag.
http://www.huffingtonpost.com/iris-lee/green-shoots-among-icelan_b_189837.html
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spilling
24.4.2009 | 11:12
Kvótaaukningin í janúar upp á 30þús tonn kostaði íslenska ríkið (mig og þig) líklega um 100 milljarða króna. Þ.e. það að þessi aukning var gefin að gjöf en ekki leigð/seld og rentan látin renna til okkar allra sem með réttu erum eigendur auðlindarinnar. Þetta eru gríðarlegar upphæðir. Hver sá stjórnmálamaður sem er ekki að reyna að leiðrétta þessa dellu er ekki að vinna fyrir mig heldur einhverja aðra. Ég tek það til mín persónulega og finnst að þú ættir að gera það líka.
Reiknum þetta aðeins lengra. 100 milljarðar á 320þús manns gera 300 ÞÚS KRÓNUR á hvert mannsbarn. Það er markaðsverðið á þeim verðmætum sem var haft af mér, persónulega, í janúar.
Og til að klára reiknisdæmið. Þessi aukning var cirka einn sjötti af heildarkvótanum. Ef dellan væri leiðrétt alveg (t.d. í áföngum á 20 árum, sem átti að vera löngu byrjað að gera) þá er heildarverðmætið sem ég fengi út úr því, persónulega, sex sinnum 300 ÞÚS KRÓNUR eða 1,8 milljón króna. Það tekur venjulegan mann með venjuleg laun sem getur lagt fyrir segjum 30þús kr á mánuði heil 5 ÁR að vinna sér inn slíka upphæð.
Þess vegna tek ég þetta persónulega.
|
AFP: Íslensk sjómennska í blóma |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Besta innlegg þingmanns í lengri tíma !
11.2.2009 | 17:30
Fáránlegt mokkerí og sjálfhverfa í gangi þarna þetta eru eins og disfunctional foreldrar sem snúast um sjálfa sig á meðan við börnin fáum ekki að borða.
|
Látið karpið bíða til kosningabaráttunnar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
American Psycho
4.2.2009 | 00:58
Að mínu mati einn mesti leiksigur á hvíta tjaldinu sem sést hefur - Christian Bale sem Patric Bateman í American Psycho:
|
Christian Bale í skapvonskukasti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Til hamingju GogoYoko !
23.1.2009 | 15:56
Þetta er flott og óeigingjarnt verkefni. ´
Frábært ef tekst að útvega listamönnum platform fyrir sölu og dreifingu þar sem sem mest lendir hjá listamanninum sjálfum - líklega í áður óþekktum hlutföllum - auk þess að hluti endar í góðgerðamálefnum.
Ég skrái mig - vona að þetta nái fljótt vinsældum !
|
Samið um fjármögnun tónlistarvefjar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Verslanir, hættið að "fronta" forsíðu DV
17.12.2008 | 11:06
Það er engin sanngirni í því að DV geti nú bara eins og ekkert hafi í skorist haldið áfram að "taka fólk af lífi" í beinni ef svo má segja með því að leggja alla forsíðuna undir eitt andlit eins og þeir hafa gert hingað til og blasað hefur við okkur í flestum matvörubúðum.
Trúverðugleiki ritstjórans og þar með blaðsins er varla til lengur, sérstaklega ekki eftir þessa lágkúrulegu aðför ritstjórans að blaðamanninum - Reynir er búinn að taka af öll tvímæli um það að hann á mjög auðvelt með að segja ósatt - hann sannaði það fyrir okkur með fréttatilkynningu sinni daginn sem hljóðupptakan var spiluð.
Reynir - sá sem á svona auðvelt með að segja ósatt - ætlar að halda áfram að vera sá sem ákveður hvaða andlit verður tekið næst af lífi á forsíðu DV.
Því segi ég við ykkur verslanir sem eruð vanar að fronta forsíðu DV í ykkar búðum á þar til gerðum auglýsingastöndum - hættið því.
|
Aldrei aftur mun óttinn stýra fréttaflutningi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)






![sciencereligion[1]](/img/tncache/s100/a1/einarsigvalda/img/c_documents_and_settings_einar_my_documents_aaa_annad_sciencereligion_1.png)
